Blað.
Almannahagsmunamiðill um manngert umhverfi á Íslandi. Ritstýrð fagrýni, rannsóknarblaðamennska og menningarsöguleg umfjöllun. Útgáfa 0 væntanleg haustið 2026.
Það sem hefur vantað í áratug.
„Hlaðlist er almannahagsmunamiðill um manngert umhverfi á Íslandi — ekki fagrit fyrir arkitekta, ekki lífsstílsblað um falleg hús."
Það hefur ekki komið út íslenskt tímarit um byggingarlist í meira en áratug. Á sama tíma hefur opinber umræða um manngert umhverfi — Græna gímaldið, þétting, skipulagsslys, ferðamannainnviðir — orðið háværari en aldrei fyrr, en á sér engan vandaðan, fastan vettvang.
Hlaðlist setur þá umræðu á sinn rétta stað: ritstýrt rit með borgaralegri fagrýni, sögulegu dýpi og vönduðu íslensku máli. Ritstjórn: Óskar Örn Arnórsson, doktor í arkitektúrssögu frá Columbia. Útgefandi og framleiðslustjóri: Einar Hlér Einarsson.
Hvað er Græna gímaldið — og hvers vegna skiptir það máli?
Fyrsta útgáfa Hlaðlistar tekur við þeim þræði sem hlaðvarpið hefur þegar haldið um íslenskt skipulagskerfi — frá Pétri Ármannssyni og skipulagsslysum, til Hlökkar Theódórsdóttur og fræðigreinarinnar sem nefndi Græna gímaldið til marks um veikleika í kerfinu.
Þegar opinbera rannsóknarskýrslan kemur út, sest ritstjórnin niður með Ásdísi Hlökk og les hana með henni. Sú umfjöllun verður Útgáfa 1 — og fyrsta stóra viðtalið í blaðinu.
Dálkar.
Aðalgrein
Ítarleg umfjöllun — rannsóknargrein, viðtal eða fagrýni. Ritstýrt afrit af samtali úr hlaðvarpinu eða frumsamið efni.
Skipulagsvaktin
Yfirlit yfir helstu tíðindi í íslenskum skipulagsmálum mánuðinn. Aðalskipulagstillögur, samkeppnir, pólítískar ákvarðanir, fjölmiðlaumfjöllun.
Ritstjórnarpistill
Stuttur leiðari frá ritstjóra. Skoðanir, athugasemdir, samhengi við stærri umræðu í íslensku samfélagi.
Áskrift opnar bráðlega.
Skráning á póstlista hefst þegar Útgáfa 0 fer í loftið haustið 2026. Blaðið verður sent fyrsta þriðjudag hvers mánaðar — ókeypis á meðan við byggjum upp ritið.