HLAÐLIST.
Hlaðvarp um arkitektúr á Íslandi

Listin
að hlaða.

Óskar Örn Arnórsson og Einar Hlér Einarsson ræða við þá sem hugsa, hanna, byggja og varðveita á Íslandi. Nýr þáttur á hverjum mánudegi.

Þættir 1—10

Þættir.

  1. 10

    Lilja Pálmadóttir

    Andinn og efnið
    14. maí 2026

    Lilja Pálmadóttir er athafnakona og hrossabóndi á Hofi. Sem myndlistakona hefur hún næmt auga fyrir byggingarlist og hefur átt frumkvæðið af því að láta reisa eða gera upp margar ólíkar byggingar, allar í hæsta gæðaflokki. Hún kom og sagði okkur frá þessum byggingum, samstarfi sínu við arkitekta ásamt mörgu fleiru.

  2. 9

    Gylfi Ólafsson

    Ísafjörður og Vestfirðir
    9. maí 2026

    Gylfi Ólafsson var áður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og er nú varaþingmaður Viðreisnar og oddviti Í-listans á Ísafirði. Gylfi fræðir okkur um ástandið á innviðum í sveitarfélaginu og þróun síðustu ára, ásamt því að fara yfir sögu nokkurra af helstu byggingum bæjarins.

  3. 8

    Vigfús Þór Hróbjartsson

    Selfoss og skipulag
    6. maí 2026

    Vigfús Þór er skipulagsfulltrúi Árborgar, en hefur einnig sinnt starfi skipulagsfulltrúa á mörgum öðrum stöðum á Suðurlandi. Við förum yfir hlutverk skipulagsfulltrúa, miðbæ Selfoss og fleiri atriði í þættinum.

  4. 7

    Magnús Skúlason

    Þétting byggðar og fagurfræðin
    10. apríl 2026

    Magnús Skúlason, arkitekt, á að baki langan og glæstan feril, bæði í einkageiranum og á opinbera sviðinu. Hann hefur starfað sem formaður byggingarnefndar Reykjavíkur, en er einnig einn af leiðtogunum í verndun eldri byggðar.

  5. 6

    Ríkharður Kristjánsson

    Verkfræði og byggingarrannsóknir
    26. mars 2026

    Ríkharður Kristjánsson, oft kallaður „verkfræðingur Íslands", kom til okkar og fór yfir þætti úr sínum goðsagnakennda starfsferil. Við ræðum hlutverk verkfræðinga, ráðhúsið og Hörpu, selinn og sauðkindina.

  6. 5

    Andri Snær Magnason

    Jötunsteinn og ljótleiki
    18. mars 2026

    Andri Snær er þjóðþekktur rithöfundur sem gaf út bókina Jötunsteinn fyrir síðustu jól. Andri kom í spjall til okkar Óskars og sagði okkur frá þátttöku sinni í arkitektúr í gegnum tíðina. Við ræddum bókina hans og aðra hluti sem tengjast kannski helst ljótleika í arkitektúr.

  7. 4

    Hlökk Theódórsdóttir

    Um Græna gímaldið
    24. febrúar 2026

    Í þættinum segir Hlökk okkur frá grein sinni „Græna gímaldið við Álfabakka — hvað segir það okkur um stjórnsýslu skipulagsmála á Íslandi?", sem birtist í tímaritinu Stjórnmál og stjórnsýsla undir lok árs 2025. Hlökk er meðal fremstu skipulagsfræðinga landsins og fer með okkur yfir sögu þessarar alræmdu byggingar ásamt öðrum málum.

  8. 3

    Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðinsson

    s.AP — Framtíð í arkitektúr
    13. febrúar 2026

    Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðinsson eru uppistaðan í stofunni s.ap arkitektar. Þau hafa verið áberandi á sviði arkitektúrs síðustu ár, m.a. með verkefnið Lavaforming, sem var valið sem fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 2025. Einnig segja s.ap okkur frá tveimur verkefnum við Háteigsveg 59 og Frakkastíg 1, þar sem þau hafa rutt brautina í því að lækka kolefnislosun bygginga.

  9. 2

    Hjörleifur Stefánsson

    Frá hvílíku torfi til tómrar steypu
    5. febrúar 2026

    Hjörleifur Stefánsson, arkitekt, hefur mikla reynslu af rannsóknum og skrifum um sögu byggingarlistar á Íslandi og hefur m.a. gefið út bækurnar Af jörðu og Hvílíkt torf — tóm steypa. Í þættinum leiðir Hjörleifur okkur frá landnámi til nútímans og fer yfir öll tímabil byggingarlistarsögunnar.

  10. 1

    Pétur Ármannsson

    Gunnar Hansson og skipulag Reykjavíkur
    5. febrúar 2026

    Fyrsti þátturinn af hlaðvarpinu Hlaðlist. Óskar Örn og Einar Hlér byrja á að ræða við Pétur Ármannsson um nýútkomna bók um arkitektinn Gunnar Hansson. Einnig er talað um „skipulagsslys" í Reykjavík, ástandið á byggingarmarkaði og margt fleira.

Um nafnið

Hlaðlist, 1925.

„Framvegis verður þetta orð notað, þegar við á, — í staðinn fyrir orðið Arkitektur — og stundum jafnt því, eftir atvikum."

— Jóhannes Kjarval, Árdegisblaðið, 13. janúar 1925

Á forsíðu Árdegisblaðsins þann 13. janúar 1925 lagði Jóhannes Kjarval til nýtt íslenskt orð yfir arkitektúr: hlaðlist. Listin að hlaða.

Greinin var ekki einungis tungumálatillaga. Í sömu opnu skrifaði Kjarval um „Háborg Guðjóns Samúelssonar" — nýbirtan uppdrátt að heilu torgi „eftir íslenskan mann" — og hvatti til opinberrar samkeppni: að ríkið kallaði eftir áliti og uppdráttum frá þjóðinni og listamönnum, og að Íslendingum erlendis yrði send sérstök áskorun.

Hlaðlist tekur þennan jarðveg alvarlega. Þetta er hlaðvarp um það sem er hlaðið — og um þá sem hlaða — á þessu landi.

Forsíða Árdegisblaðsins 13. janúar 1925 — greinin „Hlaðlist
Árdegisblaðið, 13. janúar 1925.
Stjórnendur

Um okkur.

Óskar Örn Arnórsson

Arkitektúrsagnfræðingur

Doktor í arkitektúrssögu frá Columbia-háskóla í New York. Doktorsritgerð hans, Architectures of the Marshall Plan in Europe, 1947–52, fjallar um hvernig efnahagsaðstoð eftirstríðsáranna mótaði evrópska byggingarlist. Hefur kennt við Listaháskóla Íslands og starfar nú á skipulagssviði Reykjavíkurborgar.

Einar Hlér Einarsson

Stofnandi Sei Studio

Annar tveggja stofnenda Sei Studio, sem hann rekur ásamt eiginkonu sinni Shruthi Basappa frá árinu 2015. Stofan vinnur verk allt frá innréttingum til borgarskipulags — þeirra á meðal eru útsýnispallurinn á Bolafjalli og Alþjóðaskóli Íslands í Garðabæ. Einar hefur einnig kennt við Listaháskóla Íslands.